Stjórn BV hefur ákveðið að kosning þingfulltrúa til Búnaðarþings (2013-2015) muni fara fram á aðalfundi BV 2012 nema fram komi krafa um almenna kosningu ekki síðar en 6 vikum fyrir aðalfund samanber ákvæði í samþykktum Bændasamtaka Íslands. Aðalfundur BV 2012 hefur ekki verið dagsettur og verður dagsetning fundarins auglýst um leið og hún liggur fyrir.Read more about Kosning þingfulltrúa til Búnaðarþings 2010-2012[…]
Í tengslum við „Ísland allt árið” hefur iðnaðarráðuneytið tekið höndum saman við Landsbankann og komið á fót þróunarsjóði til að styrkja álitleg heilsársverkefni í ferðaþjónustu. Sjóðurinn mun einkum styrkja fyrirtæki sem þegar eru starfandi í ferðaþjónustu og hafa mótaða viðskiptahugmynd. Sjá nánar á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands með því að smella hér.
Fagráð í nautgriparækt stóð fyrir ráðstefnu 30. nóvember 2011 þar sem tekin voru fyrir málefni er tengdust kynbótastarfi í nautgriparækt. Á ráðstefnunni, sem haldin var í Bændahöllinni, var m.a. rætt um árangur kynbótastarfsins, breytingar á áherslum í ræktunarstarfinu á undanförnum árum, nýjungar í kynbótum og nýjar leiðir, kynbætur á grundvelli upplýsinga um erfðamengi, árangur skipulagðrarRead more about Ráðstefna um nautgriparækt – Glærur[…]
Við minnum á að frestur til að skila forðagæsluskýrslum í gegnum bustofn.is er 10. desember. Hægt er að skoða leiðbeiningar um útfyllingu forðagæsluskýrslna með því að smella hér. Frestur til að skila forðagæsluskýrslum á pappír rann út þann 20. nóvember. Þeir sem ekki hafa enn skilað skýrslunni eru vinsamlegast beðnir um að senda hana semRead more about Skil á forðagæsluskýrslum[…]
Þann 22. nóvember var haldinn kynningarfundur Sauðfjársæðingastöðvar Vesturlands á Hvanneyri og mættu um 70 manns á fundinn. Framsögumenn á fundinum voru Lárus G. Birgisson sauðfjárræktarráðunautur og Eyjólfur Ingvi Bjarnason starfandi landsráðunautur í sauðfjárrækt. Fundurinn var tekinn upp og má nálgast þá upptöku með því að smella hér.