Nú höfum við opnað aftur eftir sumarfrí og þá er gott að fara að huga að bókun virðisaukaskatts vegna tímabilsins janúar – júní 2017. Þeir sem nota okkar þjónustu eru beðnir um að skila inn gögnum við fyrsta tækifæri. Aftur viljum við benda á breytingu á mótframlagi í lífeyrissjóð, þar sem bændur / sjálfstæðir atvinnurekendurRead more about Orðsending frá Bókhaldsþjónustu BV[…]
Bændur athugið: Sjálfstæðir atvinnurekendur greiða áfram 8,0% mótframlag. Aðeins er skylda að hækka mótframlag fyrir launþega. Bændum er hins vegar frjálst að hækka sitt mótframlag einnig. Allt viðbótarframlagið fer í samtryggingardeild nema sjóðfélagi óski eftir að því verði ráðstafað í tilgreinda séreign. Hækkun iðgjalds 1. júlí – val um ráðstöfun viðbótariðgjalds
Nýtt Bréf til bænda er komið út! Þar er að finna upplýsingar um sumarlokun á skrifstofu, breytingar á starfsmannamálum BV, breytingu á gjaldskrá fyrir kúasæðingar og fleira. sjá nánar hér Bréf til bænda júní 2017
Aðalfundur Búnaðarsamtaka Vesturlands verður haldinn á Hvanneyri fimmtudaginn 6. apríl og hefst kl. 11.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Erindi gesta Tillaga að breytingum á samþykktum BV Önnur mál Fundinn sitja fulltrúar allra Búnaðarfélaga auk starfsmönnum og stjórn BV, fundurinn er opinn öllum félagsmönnum í aðildarfélögum Búnaðarsamtakanna, með málfrelsi og tillögurétt.
Nú styttist í framtalsskil vegna ársins 2016, við viljum hvetja viðskiptavini Bókhaldsþjónustu BV ehf til þess að skila inn gögnum tímanlega. Því miður höfum við ekki tök á að bæta við fleiri nýjum viðskiptavinum, eins og staðan er í dag.