Nýtt Bréf til bænda er komið út! Þar er að finna upplýsingar um sumarlokun á skrifstofu, breytingar á starfsmannamálum BV, breytingu á gjaldskrá fyrir kúasæðingar og fleira. sjá nánar hér Bréf til bænda júní 2017
Aðalfundur Búnaðarsamtaka Vesturlands verður haldinn á Hvanneyri fimmtudaginn 6. apríl og hefst kl. 11.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Erindi gesta Tillaga að breytingum á samþykktum BV Önnur mál Fundinn sitja fulltrúar allra Búnaðarfélaga auk starfsmönnum og stjórn BV, fundurinn er opinn öllum félagsmönnum í aðildarfélögum Búnaðarsamtakanna, með málfrelsi og tillögurétt.
Nú styttist í framtalsskil vegna ársins 2016, við viljum hvetja viðskiptavini Bókhaldsþjónustu BV ehf til þess að skila inn gögnum tímanlega. Því miður höfum við ekki tök á að bæta við fleiri nýjum viðskiptavinum, eins og staðan er í dag.
Samkvæmt nýjum búvörusamningum geta bændur sótt um bæði jarðabótastyrki og landgreiðslur. Það er skilyrt að færð sé uppskera í skýrsluhaldskerfið jörð.is og að teiknuð hafi verið túnakort fyrir hvert lögbýli sem nýtt er til fóðuröflunar. Skrá þarf síðan uppskeru í jörð.is Sjá III kafla Reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað. https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=b8287707-ebd5-4db5-ba8c-c89af4a1da1b Búnaðarsamtök Vesturlands hefur nú ráðiðRead more about Túnakort er forsenda fyrir landgreiðslum og jarðabótastyrk[…]