Skrifstofa Búnaðarsamtaka Vesturlands verður lokuð frá og með 14. janúar 2019 og opnar aftur 31. janúar 2019. Ef um áríðandi erindi er að ræða hafið samband við Jón Gíslason formann Búnaðarsamtakanna í síma 846-8608, einnig má senda tölvupóst á Torfa atb@bondi.is eða Ingu ihi@bondi.is
Á aðalfundi Búnaðarsamtaka Vesturlands 9. apríl sl. var kjörin ný stjórn BV. Þórhildur Þorsteinsdóttir lét af störfum sem formaður samtakanna. Við formannsembættinu tók Jón Gíslason, Lundi, Lundarreykjadal. Aðrir stjórnamenn voru kjörnir Hannes Adolf Magnússon, Eystri-Leirárgörðum og Sigrún Hanna Sigurðardóttir, Lyngbrekku.