Reiðmaðurinn – Námskeiðsröð LbhÍ fyrir áhugafólk um reiðmennsku


Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands, í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda, opna nú fyrir nýja námshópa í áfangaskipt tveggja ára nám í reiðmennsku, hrossarækt og almennu hestahaldi. Námið sem kallast Reiðmaðurinn má taka með vinnu og er hugsað fyrir áhugafólk eldra en 16 ára sem hefur áhuga á að bæta sína reiðmennsku og þekkingu á hrossarækt. Verkleg kennsla fer fram ca. eina helgi í mánuði frá september og fram í apríl. Bóklegt nám er tekið samhlið í gegnum námsvef skólans.

Námið er byggt upp sem röð af helgarnámskeiðum þar sem nemendur koma einu sinni í mánuði með sinn hest og taka fyrir ákveðinn hluta af reiðmennskunni. Einnig er farið yfir bóklegt efni í fyrirlestrum og með fjarnámi. Hér er því um sambland af staðarnámi og fjarnámi að ræða þar sem ætlast er til að nemendur undirbúi sig bæði í verklegum og bóklegum atriðum heima.

Námið er metið til samtals 33 ECVET-eininga á framhaldsskólastigi og lýkur námskeiðsröðinni með sérstakri viðurkenningu frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Námið er unnið í samvinnu við Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda.

Verkefnisstjóri námsins fyrir hönd Endurmenntunar LbhÍ er Ásdís Helga Bjarnadóttir, en að faglegri uppbyggingu námsins kemur Gunnar Reynisson, Þorvaldur Kristjánsson ásamt stundakennurum Reiðmannsins.

Smellið hér til að skoða auglýsingu.
Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á heimasíðu LbhÍ.