Námskeið í dkBúbót

Borgarnesi – Hótel Hamri:
– Mánudaginn 23. febrúar kl. 13.00-17.00 – grunnnámskeið
– Þriðjudaginn 24. febrúar kl. 9.00-13.00 – framhaldsnámskeið

Á grunnámskeiðinu verður farið í skráningu dagbókar, virðisaukaskattsuppgjör, skuldunauta, lánadrottna, vörur, sölureikninga og ársuppgjör.
Á framhaldsnámskeiðinu verður farið í launakerfið, eignakerfið og framtal.

Námskeiðsgjaldið er 24.000 kr. fyrir stakt námskeið (6 kennslustundir) og 40.000 ef viðkomandi skráir sig á bæði grunnnámskeið og framhaldsnámskeið. Bændur geta sótt um styrk úr starfsmenntasjóði BÍ vegna námskeiðanna.

Til að skrá sig á námskeið skal senda tölvupóst í síðasta lagi þremur dögum fyrir dagsetningu námskeiðs á jle@rml.is þar sem fram kemur:
• Nafn og heimilisfang
• Hvaða námskeið viðkomandi vill fara á (hvar, hvenær)
• Símanúmer
• Kt. greiðanda

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Lind, rekstrarráðunautur RML, netfang jle@rml.is eða s. 516-5028

Kynningarfundir vegna framtals og ársuppgjörs í dkBúbót:

• Bograrnesi, Hótel Hamri, mánudagskvöldið 23. febrúar kl. 20.00

Farið verður yfir framtalsgerð í dkBúbót og algengar spurningar sem upp hafa komið ásamt helstu breytingum á skattaumhverfinu og dkBúbót forritinu.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Lind, rekstrarráðunautur RML, í netfanginu jle@rml.is eða síma 516-5028.