Fréttatilkynning v/Sauðamessu 2011.

saud

Fjárfestar athugið!

Sauðamessa 2011 í Borgarnesi laugardaginn 15. október.

Kjörið tækifæri fyrir Kínverska fjárfesta, sem og alla aðra, að festa sér fé því nóg verður af lausafé að vanda í réttinni rétt við Skallagrímsgarð. Síðan má benda á, líkt og margir góðir handverksmenn þekkja, að úr sauðavölum, t.d. má gera hina glæsilegustu skartgripi, meðal annars fjárfestar. Slíkar festar verða án efa á boðstólnum á hinum sívinsæla
Sauðamessumarkaði.

Að vanda hefst messuhald með fjárrekstri frá Dvalarheimili aldraðra klukkan 13.30 að staðartíma. Fjármagnið verður rekið eftir Borgarbrautinni að Skallagrímsgarði hvar hefst í beinu framhaldi skemmtidagskrá með félegu ívafi.

Söngur, sprell, kappát, sauðsleg íþróttakeppni, gangnahestar, sauðir og ærlegur varningur í boði á markaðstorgi.

Borgfirskir sauðfjárbændur bjóða öllum íbúum alheimsins í himneska kjötsúpu.

Og að sjálfsögðu verður ærlegt sauðamessuball um kvöldið.

Dagskrá nánar kynnt í kínverskum sem og borgfirzkum fjölmiðlum þegar nær dregur.