Dagur kanínunnar 13.júní

kanina_angoraLandbúnaðarháskóli Íslands í samvinnu við kanínuræktandann, Sigrúnu Elíasdóttur, Ullarselið og Landbúnaðarsafn Íslands ætla halda uppá Dag kanínunnar laugardaginn 13. júní kl. 13:00 næstkomandi á Hvanneyri. Allir eru hjartanlega velkomnir!

Hugmyndin er að bjóða uppá dagskrá sem höfðar til kanínubænda sem vilja miðla af þekkingu sinni eða fræðast, sem og almennings til gagns og gamans. Í boði verða stutt fræðsluerindi um kanínur, kanínurækt og nýsköpun. Dýr verða til sýnis og aðbúnaður þeirra. Einnig er vonast til þess að þeir sem hafa unnið vörur eða handverk úr kanínuskinni eða fiðu hafi samband og fái aðstöðu til að leggja það fram til sýnis, enda fjöldi fallegra muna unnir úr þessu hráefni.   Ullarselið verður opið ásamt Landbúnaðarsafni Íslands. Kaffiveitingar verða til sölu til styrktar safnsins. Útihús LbhÍ verða opin og því kjörið að kíkja þangað inn. Ýmislegt fleira verður í boði fyrir alla aldurshópa.

Fjöldi kanína, s.s. angóru-, feld og kjötkanína hefur farið minnkandi undanfarin ár og því kjörið á þessum tíma að ryfja upp hvernig ræktun þeirra fer fram og hvernig megi nýta þær afurðir sem verða til við ræktun þeirra. Í lok dags um kl 17:00 er ætlunin að endurvekja Landssamband kanínubænda, þeir sem hafa áhuga á að gerast félgsmenn eru beðnir að hafa samband við Sigrúnu Elíasdóttur (s: 6952583 netfangið islandur@yahoo.com) eða Ásdísi Helgu Bjarnadóttur (s: 843 5302 netfangið asdish@lbhi.is) einnig ef fólk hefur áhuga að taka virkan þátt í kanínudeginum með uppákomu eða afurðir/handverk til kynningar.