Author: buvest
Hrútaskráin 2019-2020
Hér er vefútgáfan: https://www.rml.is/static/files/RML_saudfjarraekt/kynbotastarf/hrutaskra/hrutaskra_2019-20_vef.pdf Minnum á kynningarfundi um hrútakostina, þar verður hrútaskránni dreift. Einnig verður hægt að ná sér í eintak á skrifstofu BV á Hvanneyri og í KB Borgarnesi.
Nýtt bréf til bænda
Nýtt bréf til bænda er á leiðinni í pósti, bréfið er einnig að finna hér á heimasíðu BV undir “Bréf til bænda”
Landgreiðslur og jarðabætur
Viljum minna á að síðasti dagur til að skila inn umsóknum um og landgreiðslur og jarðræktarstyrki er núna þriðjudagurinn 1.október – en ekki 20. október eins og verið hefur. Frestur verður ekki framlengdur svo það er ekki eftir neinu að bíða með að klára jarðræktarskýrsluhaldið og sækja um styrki.
Sumarlokun BV
Skrifstofa Búnaðarsamtakanna verður lokuð frá 8.júli til 5. ágúst. Opnum aftur þriðjudaginn 6. ágúst. Ef um áríðandi erindi er að ræða má senda tölvupóst á atb@bondi.is eða hringja í síma 892 0517. Kúasæðingar verða með óbreyttu sniði.
