Átaksverkefnið “Hollur er heimafenginn baggi” heppnaðist vel

Síðastliðinn vetur var ákveðið að setja af stað átaksverkefni í matjurtarækt á starfssvæði Búnaðarsamtaka Vesturlands. Aðalmarkmið þessa verkefnis var að hvetja ábúendur lögbýla á starfssvæðinu til að auka ræktun útimatjurta til heimanota og jafnvel sölu. Einkum var horft til ræktunar á grænmeti og berjum sem ekki þarf að rækta í upphituðum gróðurhúsum til að ná viðunandi árangri, t.d. kartöflur, gulrófur, gulrætur, káltegundir, salat, spínat, lauktegundir, kryddjurtir, jarðarber og berjarunnar. Framlag BV fólst í eftirfarandi:

– Samantekt á almennum leiðbeiningum í matjurtarækt og ábendingar um lesefni.
– Heimsókn í apríl þar sem aðstæður voru skoðaðar og farið yfir ræktunaráform sumarsins.
– Fyrirspurnum sem bárust í tölvupósti eða síma svarað jafnóðum frá febrúar til ágúst. Spurningar og svör gjarnan send á alla þátttakendur.
– Heimsókn í ágúst þar sem litið var á árangur ræktunar, rætt um vandamál ef upp komu og ræktendur hvattir til dáða.

Ábúendur 20 lögbýla á starfssvæðinu skráðu sig til þátttöku og voru með einhverja matjurtarækt í sumar. Umfang og árangur ræktun breytilegur en í mörgum tilfellum tókst ræktun prýðilega. Þátttakendur greiða þátttökugjald, reiknað sem fimm klst vinna samkvæmt gjaldskrá BV fyrir bændur á þjónustusvæðinu. Í ráði er að bjóða upp á þetta verkefni áfram. Umsjónarmaður er Árni B. Bragason.

Myndir sem teknar voru hjá þátttakendum má skoða með því að smella hér. Á myndunum má bæði sjá glæsilegan árangur og “vandamál” sem upp komu.