Kynning á hrútum og upplýsingar frá Sauðfjársæðingastöðinni.

Hér er hægt að nálgast kynningarefni á hrútakosti vetrarins https://www.youtube.com/watch?v=otggk7DF3dI&t=0

Afgreiðsla á hrútasæði verður dagana 1. des til 21. des.

Flesta daga mun sæði verða tilbúið upp úr kl 10 en þegar mesta álagið er um miðjan mánuðinn getur þó eitthvað seinkað.

Frjótæknar munu að einhverju leiti sjá um dreifingu eins og undanfarin ár.

Pöntunarkerfi er á heimasíðunni, smella þarf á hnappinn “panta sauðfjársæði” hægra megin á forsíðunni en ef menn lenda í vandræðum með að panta má alltaf senda póst á bv@bondi.is eða hringja í síma 892 0517.

ATH. Afsláttur er á hrútasæði til félagsmanna BV.

Þeir félagsmenn sem hafa greitt árgjald Búnaðarsamtaka Vesturlands fyrir 31. des munu fá 8% afslátt af hrútasæði.