Þann 1.október rennur út frestur til að sækja um landgreiðslur og jarðræktarstyrki í afurð.is
og viljum við benda bændum á að skoða þessi mál sem fyrst þar sem reynslan hefur verið að alltof margir draga fram á síðustu stundu að sækja um og þá kemur í ljós að eitthvað þarf að laga og kannski orðið of seint.
Þeir bændur sem þurfa aðstoð við skráningar á ræktun, áburðargjöf og uppskeru eða þurfa að láta teikna upp eða breyta túnkortum verða að hafa samband við RML sem allra fyrst til að tryggja sér þjónustu fyrir umsóknarfrest. Líkt og undanfarin ár þurfa bændur að skila jarðræktarskýrslu í Jörð.is áður en þeir geta sótt um landgreiðslur og jarðræktarstyrki í Afurð.is.
