Bændafundir vegna breytinga á búvörusamningum

Kynningarfundir um breytingar á gildandi búvörusamningum um starfsskilyrði sauðfjárræktar og mjólkurframleiðslu verða haldnir um allt land á næstu dögum. Fundirnir eru öllum opnir en bændur sem starfa við mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt eru hvattir til að mæta á fundina og kynna sér breytingar á samningunum.

Greidd verða atkvæði í póstkosningu og verða rétthöfum beingreiðslna og félögum í Bændasamtökum Íslands sendir atkvæðaseðlar.

Mikill annatími er í sveitum og ljóst að margir eiga erfitt um vik að mæta á fundi. En vegna sérstakra aðstæðna reynist nauðsynlegt að hafa kynningarfundina á þessum tíma. Með það í huga verður leitast við að hafa fundina markvissa og um klukkustundar langa.

Fundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

Staður Dags. Staðsetning Fundartími

Kjós fimmtudagur 30.apríl Kaffi Kjós kl. 13:00

Borgarnes fimmtudagur 30.apríl Hótel Hamar kl. 20:30

Dalir og Reykhólar fimmtudagur 30.apríl Dalabúð kl. 13:00

Barðaströnd fimmtudagur 30.apríl Birkimelur kl. 20:30

Ísafjörður þriðjudagur 5. maí Hótel Ísafjörður kl. 13:00

Nánari upplýsingar um samningana er hægt að nálgast á vef BÍ með því að smella hér.